May God bless and keep you always, May your wishes all come true, May you always do for others And let others do for you. May you build a ladder to the stars And climb on every rung, May you stay forever young, Forever young, forever young, May you stay forever young.
May you grow up to be righteous, May you grow up to be true, May you always know the truth And see the lights surrounding you. May you always be courageous, Stand upright and be strong, May you stay forever young, Forever young, forever young, May you stay forever young.
May your hands always be busy, May your feet always be swift, May you have a strong foundation When the winds of changes shift. May your heart always be joyful, May your song always be sung, May you stay forever young, Forever young, forever young, May you stay forever young.
Við Bjarni Dagur fórum á sýningu Shirin Neshat í Listasafni Íslands í dag og skoðuðum áhugaverð video verk sem eru þar til sýnis, og svo auðvitað kaffihús á eftir. SHIRIN NESHAT Í LISTASAFNI ÍSLANDS einnig viðtal í KASTLJÓSI
...... meiri menning, Engisprettur kl.20:00 hjá okkur Tinnu.( það eru víst mjög flottar tennur í þessu verki) Í Engisprettum er fjallað um fjölskylduna, átök ólíkra kynslóða og viðleitni mannsins til að komast af, á bráðsnjallan og meinfyndinn hátt. Við kynnumst fjölda persóna og fylgjumst með því hvernig örlög þeirra eru samofin. Svartur húmor, angurværð og mannleg hlýja renna saman á sérstæðan hátt í margslungnu verki.
With Your Permission - Danish Trailer Hópurinn úr Endurmentun fór saman á þessa mynd í gærkvöld ( föstud) ásmamt kennara. Eftir myndina fóum við á kaffihús og var myndin rædd þar.
Byrjaði á þriðjudagskvöld á námskeiði hjá Endurmenntun HÍ sem heitir ''Kvikmyndirnar og lífið'' Var að horfa á þessar frábæru myndir, In America og Lars And The Real Girl, báðar alveg frábærar. Árni Svanur kennari á námskeiðinu segir að maður sé ekki búin að sjá mynd fyrr en maður hefur horft á hana þrisvar, svo að ryksugan,þvotturinn og matargerðin verða að bíða.
Fóum á fimmtudagskvöldið með Helgu, Jonna, og Ellu á gítarhátíð Bjössa Thor, sem er partur af jazzhátíð Reykjavíkur 2008. Auk Björns komu fram Magnús Eiríksson, Kazumi Watanabe, Philip Catherine, Þórður Árnason og þeir Jóhann Hjörleifsson á trommur og Jón Rafnsson á bassa.
( Ekið austur í Þrengsli u.þ.b. 2 km fram hjá Sandfelli sem er lítill fjallshnúkur á hægri hönd rétt hjá Geitafelli. Krossfjöll eru lítt áberandi frá vegi séð enda rísa þau ekki hátt yfir umhverfið en vel þess virði að kynnast þeim nánar. Nafnið er talið þannig til komið að þau mynda kross. Vegalengd 5 km. Hækkun 100 m. )MYNDIR MYNDIR /PICTURES
Það er gott að vera komin heim eftir yndislegt frí hjá elskulegri fjölskyldu okkar á Long island.Fyrir viku vorum við í ys og þys Manhattan, en nú í dag í sveitasælunni að Flúðum þar sem við fórum að kíkja eftir hestum Ellýar og Gígju, en þeir eru þar í sumarbeit og einnig nýfætt folald Gígju.Jara Mjöll og Viktoría Helgadætur voru með okkur, enda búnar að ver hjá afa og ömmu alla helgina þar sem foreldrarnir eru að spóka sig í Svíjaríki. MYNDIR MYNDIR/ PICTURES
Skoðuðum heimili Jackson Pollock og Lee Krasner í East Hampton. Það var áhrifaríkt að skoða vinnustofuna sem mörg af hans frægu''drip'' myndum voru gerðar.Við máttum ganga inn á gólfið en þurftum að setja á okkur sérstaka skó. Heimilið var fallegt allar gömlu bækur og jazz plötur Pollock á sínum stað. MYNDIR MYNDIR MYNDIR HEIMASÍÐA SAFNSINS
Fórum í gær til Fire island sem er 52 km langt rif fyrir utan Long island.(Today Fire Island is one of the hottest places to have a beach house. Still popular among artists, actors, musicians, and the ultra rich. Fire Island has never succumb to the same commercialism and class barriers that haunts the Hamptons. Fire Island has no restaurants that require a tie and people here opt for casual dress. This still is a truly laid back Bohemian getaway.)MYNDIR - PICTURES
Ein af sýningum The Met var sýning á búningum sem gerðir eru upp úr teiknimyndarblöðum. Sumir þessara búninga hafa verið notaðir í kvikmyndir t.d. var þarna búningur Batman úr nýju myndin sem við sáum hér í vikunni. SUPERHERO SÍÐA
Flugum til NY og vorum svo heppin ad Josa vinkona okkar flaug med okkur ut. Hun dekradi vid okkur alla leidina og var hun tess vegna allt of stutt ,bara 6 timar. P.S Er ekki med tolvu med islensku letri :-( MYNDIR
Cafe la Fortuna á 71 stræti var kaffihús John Lennon´s þegar hann var og hét. Ég var vanur að stoppa við og fá mér kaffibolla þegar ég átti leið hjá og ætlaði að bjóða Tinnu Rós þanga seinna í mánuðinum þegar við förum í menningarferð til Manhattan. Nú var ég að kíkja á heimasíðu kaffihúsins og sá þá að staðnum var lokað24. feb.Ég set hérna HEIMASÍÐU Cafe La Fortuna.